fimmtudagur, 6. október 2011

- opið bréf

Reykjavík 5. október 2011



Ágætu framsóknarmenn í Reykjavík!

Nú hefur 140. þing Alþingis verið sett. Var það sett í skugga mikilla mótmæla almennings. Engum dylst sú mikla reiði sem búið hefur um sig hjá landsmönnum vegna verklausar ríkisstjórnar. Allt frá haustdögum 2008 hefur lítið gerst í málefnum heimilanna og uppbyggingar atvinnulífs.
Þegar við framsóknarmenn fórum fram með afar öfluga kosningastefnuskrá vorið 2009 vorum við full bjartsýni og kjarki á að takast við það verkefni sem lá fyrir – að koma skuldugum heimilum til bjargar – með almennri skuldaniðurfellingu. Andstæðingar okkar gerðu allt sem þeir gátu að tala niður okkar tillögur. Nú hefur komið í ljós að skuldaniðurfellingarleið Framsóknarflokksins var fær og sú eina rétta. Ábyrgð ríkisstjórnarinnar er mikil og í stað þess að fara almenna leið byggða á jafnræðisreglu var farin sú leið að sumir fá afskriftir og aðrir ekki. Ég tel að ekki séu öll kurl komin til grafar í ákvörðunum ríkisstjórnarinnar er nýju bankarnir voru stofnaðir. Sama má segja um tillögur okkar í afnámi gjaldeyrishafta.
Mikill áróður er nú rekinn í fjölmiðlum gegn þingmönnum Framsóknarflokksins. Ég spyr mig stundum – hvernig væri áróðursstríðið – værum við í ríkisstjórn. Líklega er þetta smjörþefurinn af því sem koma skal. Að mínu mati eru fjölmiðlar að bregðast með því að taka stöðu með ríkisstjórninni í stað þess að vera í „stjórnarandstöðu“.
Á einhvern hátt er búið að snúa öllu á hvolf og spuninn er keyrður áfram. Ríkisstjórnin fríar sig ábyrgð og kemur verkleysi sínu yfir á alla alþingismenn. Ekki hefur staðið á okkur að koma fram með tillögur til bætts samfélags en þær komast einfaldlega ekki á dagskrá þingsins. Í íslenskum stjórnmálum ríkir pattstaða í dag. Sú pattstaða verður einungis leyst með kosningum. Það er annar meirihluti í þinginu en í landinu.
Þingmenn Hreyfingarinnar hafa að nokkru leyti gengið í lið með ríkisstjórninni hvað varðar breytingar á stjórnarskránni. Hreyfingin vill ekki fyrir nokkurn mun kosningar. Þrátt fyrir fagurgala forsætisráðherra um að senda eigi skýrslu þá sem stjórnlagaráð skilaði til þingsins í þjóðaratkvæðagreiðslu er það óframkvæmanlegt. Það vita allir að stjórnarskrá verði ekki breytt nema með tilstilli þingsins og alþingiskosningum. Dag eftir dag kemst forsætisráðherra upp með þennan máflutning.
Hér eru skattar hækkaðir og álögur auknar. Lán heimilanna hækka og hækka vegna ruðningsáhrifa. Grunnstoðir samfélagsins veikjast og veikjast vegna niðurskurðar. Það þýðir lítið að setja lög á Alþingi sem landsmenn eiga að fara eftir – þegar grunnstoðir eftirfylgni laganna eru fjársveltar. Þarna á ég við lögregluna, dómstólana og fangelsin.
Ríkisstjórnin getur ekki fyrir nokkurn mun forgangsraðað verkum sínum né mótað stefnu til framtíðar. Þessu verðum við framsóknarmenn að breyta. Við eigum gnótt tækifæra sem þjóð og þau tækifæri verðum við að nýta fyrir landsmenn alla.
Ég vonast til að sjá ykkur í starfi Framsóknarflokksins í Reykjavík í vetur. Ég hvet ykkur til að koma í laugardagskaffið þann 8. október n.k. þar sem ég kem til með að sitja fyrir svörum og fara yfir þingveturinn. Kjördæmasambandsþing KFR hefur verið ákveðið 29. október n.k. og félögin eru að skipuleggja aðalfundi sína þessa dagana. Við þingmenn flokksins þurfum á ykkur að halda í þeim ólgusjó sem stjórnmálin eru og vonast ég eftir þróttmiklu starfi með ykkur í vetur.

Með bestu kveðju,
Vigdís Hauksdóttir, alþingismaður