fimmtudagur, 2. september 2010

- fegrunaraðgerð Jóhönnu ...

Ég hef notað þessa síðu til að halda utan um þær greinar sem ég hef skrifað í blöðin.
Nú hef ég ákveðið að skrifa hér einnig hugleiðingar mínar um líðandi stund. Þegar þetta er skrifað eru ríkisstjórnarflokkarnir á fundum - að leggja kapal.
Andlitslifting ríkisstjórnarinnar á að eiga sér stað í dag - en þeirri fegrunaraðgerð verður að vera lokið fyrir kl. 13:30. Þá er á dagskrá þingsins skýrsla forsætisráherra um "stöðu og stefnu ríkisstjórnarinnar."
Verð ég einn af þremur talsmönnum Framsóknarflokksins í þessum umræðum. Af nógu er að taka - staða ríkisstjórnarinnar er vægast sagt dapurleg og ríkisstjórnin er áttavillt - og því varla hægt að tala um stefnu.
Ógegnsæi, blekkingar, spuni og ráðningar án auglýsinga einkennir störf forsætis - og verkstjórnans Jóhönnu Sigurðardóttur -