mánudagur, 28. júní 2010

Hverju reiddist „eldfjallið“ Össur nú?

Dónaskapurinn og hrokinn í Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra á sér engin takmörk. Nú stærir hann sig af því að hafa tekið Per Sanderund, forseta ESA og hundskammað hann. Sá síðar nefndi hafði unnið sér það eitt til - að tjá skoðun sína á Icesave. Litið er á spýjur Össurar alvarlegum augum hjá ESA sem hefur það hlutverk að framfylgja lögum og regluverki þeirra ríkja sem eru aðilar að EES samningnum.
Á svona stundum skammast ég mín óendanlega fyrir þá ríkisstjórn sem er við völd. Össur var ráðherra í ríkisstjórn Íslands þegar hrunið varð. Gæti ekki verið að Össuri skorti traust á alþjóðavettvangi til að sinna starfi sínu? Það er fátítt að heil þjóð bjóði upp á utanríkisráðherra til að sinna erlendum samskiptum sínum sem ber slíka ábyrgð. Hér á máltækið „úlfur í sauðagæru“ vel við.
Mikil lagaleg óvissa ríkir um Icesave, óvissa sem byggist á gölluðu regluverki ESB. Þau rök hefur Össur og Samfylkingin aldrei litið við. Bresku og hollensku innistæðurnar skal íslenska þjóðin borga með illu eða góðu, þrátt fyrir að þjóðin hafi í bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu hafnað þeirri lagaleysu sem ríkisstjórnin kom í gegnum þingið með tæpum meirihluta. Framtíðarkynslóðavíxillinn skal taka gildi, víxill sem örfáir óreiðumenn skrifuðu undir, með íslensku þjóðina að veði. Hvað gengur utanríkisráðherra til? Jú svarið er einfalt. Össur Skarphéðinsson og Evrópusinninn í dulargerfinu, Steingrímur J. Sigfússon, ætla að koma Íslandi með manni og mús inn í Evrópusambandið. Íslenska þjóðin og auðlindirnar eru ekki skiptimynt í hungri þessara félaga til viðurkenningar í Evrópu. Ómálga börn sjá að sambandið milli Icesave og aðildarumsóknarinnar er órjúfanleg.
Hverju hefur utanríkisráðherra lofað í Brussel, hví bregst hann svona við, hvað þolir ekki dagsljósið hér? Össur má gjósa til heimabrúks eins oft og hann vill, en hann hefur ekki leyfi til að hrauna yfir mikilsmetna erlenda embættismenn sem tjá hlutina eins og þeir eru.
Norður Evrópu vantar eldfjöll – eitt er hreyfanlegt.