Grein í Morgunblaðinu 24. apríl 2010
Í liðinni viku fékk ég svar frá dómsmálaráðherra við þeirri spurningu hve margir einstaklingar hafi sloppið við fangelsisrefsingu og fésektir vegna plássleysis í fangelsum landsins á árabilinu 2000 – 2010.
Frá árinu 2000 og til ársloka 2009 fyrndust fimm dómar. Engir dómar fyrndust á árunum 2003–2007 en þrír á árunum 2008–2009. Á þessu tímabili hefur ríkið afskrifað sektir upp á tæpar 132 milljónir króna sem er 10% af kostnaðaráætlun nýs öryggisfangelsis. Kom fram í svarinu að 1.799 einstaklingar skuli afplána vararefsingu vegna ógreiddra fésekta. Samtals skulda þessir einstaklingar tæpan 1,2 milljarð sem er nákvæmlega sú upphæð sem talið er að nýtt öryggisfangelsi kostar ríkissjóð.

Mál þessara einstaklinga eru í fyrningarhættu sökum þess að ekki hefur verið unnt að boða þessa aðila í afplánun. Gerður var sá fyrirvari í svari ráðherrans að 20 einstaklingar skulda hátt í helminginn af heildarupphæðinni og munu þeir líklega afplána sektina með samfélagsþjónustu. Ef ekkert verður að gert til að fjölga fangarýmum í landinu og munu dómar fyrnast vegna plássleysis í auknum mæli. Fer það m.a. eftir fjölda gæsluvarðhaldsúrskurða á næstu missirum. Í svari dómsmálaráðherra kemur fram að dómsmálaráðuneytið hefur nýlega óskað eftir því við Fangelsismálastofnun að það verði greint hvers vænta megi að þessu leyti á næstu árum.
Í greiningu stofnunarinnar kemur fram að þess sé að vænta að til fyrninga 14 dóma kunni að koma á árunum 2010 og 2011. Eftir það megi gera ráð fyrir að um 100 dómar geti fyrnst á næstu tveimur árum eftir það. Þessar upplýsingar miðast við stöðuna í dag og tæpast þarf að taka fram að sprenging verður í þörf fyrir afplánun eftir að dómsmál falla á grundvelli skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og þeirra mála sem nú eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Nú verður ríkisstjórnin að forgangsraða í ríkisrekstrinum. Ekki dugir að leggja aukið fé og mannafla til sérstaks saksóknara ef ekki eru til úrræði til að taka við afurðinni sem rannsókn og dómsmál embættisins leiða af sér. Ef reglur réttarríkis eiga að gilda hér á landi verður að leggja aukið fjármagn til þeirra endastöðvar sem dómsmál skilja eftir sig.
Eins og að framan greinir, er það þjóðhagslega hagkvæmt, að næg fangelsispláss séu til staðar ellegar tapar ríkissjóður háum upphæðum með aðgerðarleysi sínu í þessum málaflokki, því reynslan hefur sýnt að fjölmargir greiða sektir þegar þeir standa frammi fyrir því að þurfa að afplána refsingu í fangelsi.