Grein í Morgunblaðinu í dag
6. mars 2010 er dagurinn sem smáþjóð í Norðurhafi reis upp og hafnaði kúgunum stórþjóða. Þetta er dagurinn sem íslenska þjóðin kaus í fyrsta sinn á lýðveldistímanum í þjóðaratkvæðagreiðslu sem er bindandi og stjórnarskrárvarin. Þennan dag eigum við öll eftir að muna í framtíðinni. Þetta er dagurinn sem Íslendingar höfnuðu á afgerandi hátt að taka á sig skuldir óreiðumanna. Þetta er dagurinn sem Íslendingar neituðu að greiða skuldir sem þeir bera ekki á nokkurn hátt ábyrgð á. Má segja að þessi dagur marki tímamót í frelsisbaráttu þjóðarinnar. Kastljós heimsins er á Íslandi vegna þessa því þjóðaratkvæðagreiðslan á eftir að marka tímamót í heimssögunni.
Rísum upp og höfum kúgunum og óskráðum reglum fjármálaheimsins. Hvergi í veröldinni er hægt að finna lagabókstaf þess efnis að ríkisstjórnum sé heimilt að ríkisvæða einkaskuldir fjárglæframanna og rukka almenning í gegnum skattkerfi hvers ríkis. Þrátt fyrir það hefur skapast sú hefð að ríkisstjórnir grípa til þess ráðs – og það veit fjármálageirinn. Af þeim sökum hefur fjármálastarsemi einkaaðila verið svo taumlaus sem raun ber vitni. Notum tækifærið til hins ýtrasta og sýnum umheiminum hvað í okkur býr.
Ég hvet landsmenn til að nýta lögvarinn kosningarétt sinn og taka á afgerandi hátt þátt í sjálfstæðisbaráttu okkar með því að krossa við NEI á atkvæðaseðlinum. Nú er komið að þjóðinni að gera orð Jóns Sigurðssonar, frelsishetju okkar Íslendinga, að sínum: „Vér mótmælum allir“.