Grein í Fréttablaðinu 27. febrúar
Undanfarið hafa verið í fréttum aðgerðir utanríkisráðuneytisins til þess að afla stuðnings frá Bandaríkjamönnum vegna Icesave. Í framhaldinu óskaði utanríkisráðherra eftir fundi með Hillary Clinton með frekari málaleitan í huga. Auðvitað eigum við að ræða þessi mál við sem flestar þjóðir enda hefur málflutningur okkar framsóknarmanna verið á þá leið. Það er undarlegt að utanríkisráðherra Íslendinga skuli ekki gera sér grein fyrir stöðu Bandaríkjamann gagnvart Bretum og Hollendingum.
Bandaríkjamenn heyja stríð í Íraq og Afganistan undir nafni NATO. Í örvæntingu leita þeir leiða til þess að einangrast ekki í stríðsrekstrinum. Þeir hafa lagt hart að Bretum og Hollendingum að draga ekki herlið sitt til baka og jafnvel hafa þeir lagt fram kröfu um að fjölga þarna hermönnum. Ég trúi því að Bretar og Hollendingar séu áhugalitlir um þennan hernað og vilja losna enda eiga þeir í miklum erfiðleikum heimafyrir vegna þessa. Hollenska stjórnin er fallin vegna ágreinings um stríðsreksturinn og breska ríkisstjórnin, undir forystu bæði Brown og Blair á sínum tíma, sæta mikilli gagnrýni. Ljóst er að þessar þjóðir halda herliði sínu þarna eingöngu vegna undanlátssemi við Bandaríkjamenn og taka á í leiðinni gríðarlega óánægju heimafyrir. Bretar og Hollendingar hafa eytt hundruðum milljarða vegna þessa, fyrir Bandaríkjamenn, og hafa sætt miklu mannfalli. Svo virðist nú sem breska ríkisstjórnin falli líka á næstu dögum.
Bandaríkjamenn þurfa á allri aðstoð að halda frá Bretum og Hollendingum sem unnt er að fá. Þeir eru í engri stöðu til þess að beita þessar þjóðir þrýstingi til þess að leggja Íslendingum lið. Að auki má á það benda að diplómatísk samskipti Íslendinga við Bandaríkjamenn hafa á engan hátt verið í lagi undir forystu Össurar Skarphéðinssonar. Sendiherra Bandaríkjanna fór af landi brott fyrir rúmu ári og ekki hefur verið talin ástæða að skipa hér nýjan sendiherra eftir að Robert S. Connan sem Obama tilnefndi hætti við að þiggja embættið á sumardögum 2009.
Í hvaða stöðu telur Össur sig vera til að skipa svo fyrir að senda embættismenn í bandaríska sendiráðið með hótanir um stuðning. Í morgunútvarpinu rás 2 sagði Össur að hann væri stoltur af þeirri hörku sem starfsmenn hans hefðu sýnt í viðræðum við Sam Watson starfandi sendifulltrúa.
Já Össur skipað gætir þú væri þér hlýtt.